Jćja rétt tćplega eitt ár frá síđustu fćrslu !!!
01. september 2009 klukkan 12:21
Jæja rétt tæplega eitt ár frá síðustu færslu hehe já ég er svo dugleg 
Er nokkuð viss um að hingað kíkir enginn lengur, ég var næstum búin að gleyma þessari síðu en ef að einhver rekst hingað inn endilega kvitta
Jæja ætla ekki að byrja að rekja alla sögu síðasta árs en það sem að stendur upp úr er:
peningavesen
Elsku Jón afi dó
Ragnar og Linda giftu sig
Íslandsferð og æðislegt ferðalag um hálendi íslands
Við og börnin höfum það gott þannig að ég læt þetta duga í bili
ENDILEGA KVITTA

Er nokkuð viss um að hingað kíkir enginn lengur, ég var næstum búin að gleyma þessari síðu en ef að einhver rekst hingað inn endilega kvitta

Jæja ætla ekki að byrja að rekja alla sögu síðasta árs en það sem að stendur upp úr er:
peningavesen
Elsku Jón afi dó

Ragnar og Linda giftu sig

Íslandsferð og æðislegt ferðalag um hálendi íslands

Við og börnin höfum það gott þannig að ég læt þetta duga í bili

ENDILEGA KVITTA
Jón Nikulás sćti prins :)
20. október 2008 klukkan 20:54
Já hann Jón Nikulás litli prinsinn minn er bara orðinn 1 árs, varð það í gær :)
Gat ekki bloggað neitt þá því það er búið að vera eitthvað vesen með tölvuna..hrikalega seinvirk :(
En litli kúturinn minn er bara farin að labba á fullu og uppáhalds orðið þessa dagana er mamma :) mikið er ég glöð :)
Hélt sameiginlega veislu fyrir öll börnin á laugardaginn, því það er ómögulegt að vera að bjóða sama fólkinu einu sinni í mánuði 4 mánuði í röð í veislu hér ;) .....Ég 28 ágúst, Guðbjörg 2 september, Nonni 19 október og Birgitta 14 nóvember. Veilsan gekk alveg ágætlega fyrir utan tafir hjá mér á matnum eins og venjulega, ég er reyndar með þá kenningu að svelta fólkið fyrst og þá smakkast maturinn miklu betur þegar að það loksins fær að éta ;) hahaha. Það var alveg hörku stuð langt fram undir miðnætti svo ekki var þetta slæmt ;)
Vinnan gengur vel og Nonni er svakalega glaður að fara til dagmömmunnar og er jafn glaður að koma frá henni, þannig að honum virðist líða vel þar :) Ég er bara með samviskubit að sakna krakkanna ekki meira á daginn en ég geri, en það er bara brjálað að gera í vinnunni hjá mér og skemmtilegt starfsfólk þannig að ég hef bara ekki mikinn tíma til að láta hugann reika ;) En þetta er mjög skrítið eftir svona langann tíma heima!
Við erum að koma heim um jólin..komum 23 des og förum heim 4 jan.. þeir sem vilja hitta okkur verða því bara að láta duga að elta okkur uppi ;) Það eru nefnilega komnar svo margar pantanir að ég veit ekki hvort að þetta frí dugar í þetta allt ;) En bara gaman að því :)
Jæja hætt í bili :)
Feita dúfan ;)
Ég var ađ eignast litla frćnku :)
11. október 2008 klukkan 16:14
Já ég er orðin föðursystir núna ;) Ragnar bróðir og Linda voru að eignast litla prinsessu í dag :)
Hún er 12,5 mörk, 47,5 cm, 34 í höfuðmál og fædd kl: 12:20.
Ég er ekki enn búin að sjá myndir af henni en vona að ég fái sendar myndir fljótt :)
O hvað þetta er gaman, enda eru börn alltaf algjör Guðs gjöf.
En Ragnar og Linda innilega til hamingju með litlu prinsessuna..megi Guð og gæfa fylgja ykkur öllum í framtíðinni:)
Byrjuđ ađ vinna :)
08. október 2008 klukkan 19:44
Já það eru slatti af nýjum fréttum :)
Ég hélt upp á 30 ára afmælið mitt með pomp og pragt og dúndrandi partýstuði :)
Var með risa partýtjald í garðinum, svo var grillað lambakjöt, kökur og gotterý í eftirrétt og söngolían lak vel ofan í alla, ja flest alla, nokkrar með löglega afsökun ;)
Halli og Róbert héldu uppi stuðinu með því að spila á gítar og allir tóku undir :)
Ég fékk einmitt gítar í afmælisgjöf frá Ívari og krökkunum :) Þannig að ég verð að fara að læra á hann fljótlega svo ég geti gengið í "hverfisbandið" hahaha :)
Þetta var bara alveg æðislegt þrítugsafmæli hefði ekki getað orðið nokkuð betra að mínu mati :)
Já svo nokkrum dögum seinna þá datt Birgitta 2-3 metra niður úr tré og fékk slæmann heilahristing og blæðingu úr nýra, lá inni á sjúkrahúsi í viku og var rúmföst í aðra viku heima....hún er orðin fín í dag og varla að sjá á henni að nokkuð hafi komið fyrir..í það minnsta ekki hræðsla 
En þar sem að Birgitta datt niður úr tré þá varð að fresta afmælisveislunni hennar Guðbjargar sem að varð 5 ára þann 2 september :) Já stóra æðislega prinsessan mín :)
En hún samþykkti að halda bara veisluna sína saman með Nonna sem að verður 1 árs þann 19 október en við ætlum að halda upp á afmælin þann 18 okt enda var enn 18 október á íslandi þegar að hann fæddist ;)
Já svo kom mjög svo óvænt upp á að ég fékk vinnu :) Jamm það var hringt í mig því að ég var með umsókn inn á Jobnet.dk og var búin að hafa hana í síðan í sumar en svo var bara hringt í mig og ég boðuð í viðtal á föstudegi, þeir tóku nokkra aðra umsækjendur í viðtal, svo ég var bara svona nett jákvæð en hafði samt mjög góða tilfinningu fyrir þessu, nema hvað ég var að deyja úr stressi yfir því hvað ég ættti að gera við Nonna því að hann var ekki komin inn hjá dagmömmu..en viti menn á mánudeginum um 2 leitið þá var hringt í mig og mér boðið pláss fyrir Nonna úti í Aegedrup og hann gæti verið á biðlista hér í Fraugde...Aegedrup er langt héðan en bara 5 mínútur frá vinnunni minni...já það var nefnilega hringt í mig klukkutíma seinna og mér boðin vinnan...ég er sem sagt kontor/bogholder assistant :) Ég sé um að reka Odense deildina hjá BC láseteknik þegar ég verð komin alveg inn í starfið. Fyrsti dagurinn minn var í dag og gekk rosalega vel, fékk að vita að þetta gekk í það minnsta betur en þau héldu að þetta myndi ganga þar sem að starfið er mjög fjölþætt og mikil sérhæfing hjá þeim í þessu sem að ekki er hægt að læra annarstaðar. Vinnufélagarnir eru mjög fínir og við náum vel saman...svo það virðist sem allt sé að koma til hjá okkur.
Já en á ég að segja ykkur svolítið týpískt fyrir mig..þeir sem að þekkja mig og mína óhappa sögu þeir vita að þetta er alltaf svona hjá mér ;) Já auðvitað þurfti Nonni að veikjast núna í fyrsta sinn !!! Já elsku drengurinn minn er með 40 stiga hita frá því á mánudagskvöldið og í gær ( þriðjd.) þá endaði ég með hann upp á læknavakt því að hann var svo slappur allann daginn og svaf bara í fanginu á mér. Læknirinn kíkti á hann og þá er litli prinsinn minn bara með eyrnabólgu, roða í hálsi og mikinn hita :( Hann er svo slappur að það er varla hægt að þekkja litla skæruliðann sem að var að byrja að labba :) Já svaka stolt mamma :)
En Ívar tók bara smá frí úr skólanum þrátt fyrir miklar annir, því það er bara svo mikilvægt eins og gengið er núna...fer ekki nánar út í það !!.... að hafa vinnu :) Svo þetta er ströggl en það skal hafast :)
Jæja er búin að sitja við tölvuna í allann dag að gefa út reikninga og bóka þannig að ég nenni ekki meiru...... sorrý hvað ég var lengi að blogga en það er bara búið að vera bilað að gera og ég næ ekki einusinni að koma því öllu niður á blogg :) En ég skal reyna ;)
Kveðja
Feita Dúfan :)
Jćja ţá er ađ koma ađ ţví ;)
25. ágúst 2008 klukkan 15:33
Jæja þá eru bara 3 dagar þar til að ég verð 30 ára ung 
Núna eru dagarnir bara teknir í það að venjast tilhugsuninni um það að ná þessum áfanga ;) haha neibb hef ekki tíma í það, er á fullu að plana partý 
Stefnan er tekin á það að byrja að grilla kl 18 og svo verður allt bara fljótandi í hinum ýmsu "söngolíum" og auðvitað verður Singstar á svæðinu og svaka stuð
Mig hlakkar bara svo svakalega til að fá alla vinina hingað get næstum ekki beðið 
Já og fyrir ykkur vini og fjölskyldu sem að búið á klakanum, ykkur er líka boðið...ég hringdi nánustu fjölskyldu til að bjóða þeim í afmælið, svona í það minnsta svo að enginn gæti sagt að ég hafi ekki boðið þeim, bjóst auðvitað ekki við að neinn kæmi með svona stuttum fyrirvara en viti menn Jóna systir hringdi í mig og sagði að þau væru á leiðinn :) Geggjað gaman að því :)
En sem sagt ég er loksins að verða stór
haha
Verið þið dugleg að kvitta :)
Kveðja feita dúfan :)
Vá hvađ ég er latur bloggari !
30. júlí 2008 klukkan 16:33
Vá ég hef bara engan vegin nennt að blogga og þegar ég nenni því þá hef ég ekki haft tíma!
Ég mun alveg pottþétt koma með langann pistil seinna en núna nenni ég því ekki.. þannig að þetta er bara mjög stutt og aðeins til að láta vita að ég er ekki hætt að blogga og er ekki komin með aðra síðu eins og sumir voru að giska á ;)
Ég er bara í sumarfríi og nýt þess vel :)
Börnin hafa það gott....Nonni er byrjaður að skríða og standa upp með ÖLLU ;) Hann er einnig komin með 5 tennur og það lítur út fyrir að það séu 3 á leiðinni..úfff :) Hann er rosalega duglegur og eftirtektasamur.. algjör gaur þessi litli prins :)
Guðbjörg er byrjuð aftur á leikskólanum og elskar það :) Hún er aðeins byrjuð að reyna mörkin þessa dagana en það er samt ekkert óvanalegt miða við aldurinn held ég :) Við erum bara svo ofsalega vön að þurfa ekki að hafa fyrir henni að þetta kom okkur svolítið á óvart ;) Samt alltaf jafn yndisleg og dugleg prinsessa :)
Birgitta er á fullu eins og alltaf... hún er ofsalega dugleg að hafa ofan af fyrir bróðir sínum..alveg upprennandi barnapía þar á ferð :) Hún byrjar svo í skólanum þann 13 ágúst.. henni er farið að hlakka mikið til enda flestar vinkonurnar þar :) Hún á jú alveg félaga hér en það er ekkert ofsalega margir á hennar aldri hér, flestir eru aðeins yngri eða aðeins eldri en það stoppar hana ekkert, enda lendir hún alltaf á fótunum ;)
Ívar er á fullu í að klára verkefnið sitt og fer í prófið þann 14 ágúst... úff hvað mig hlakkar til að þetta sé að verða búið :)
Ég er að fara í kvöldskóla til að klára þessar örfáu greinar sem að mig vantar upp á til að komast inn í það nám sem ég vill :) Jamm ég er nefnilega mikið að spá í að skella mér í hjúkkuna enda hefur það blundað í mér í mörg ár en af enn fleiri ástæðum hef ég alltaf frestað þessu... en ég hef fengið að vita að mig vantar bara 2 greinar uppá að komast inn og ég get tekið þær í kvöldskóla í vetur :) Vá hvað mig hlakkar til :)
Við erum með alveg frábæra nágranna hér, bæði íslenska og danska... það er bara svo gaman að geta þekkt flest alla nágranna sína mjög vel...þetta er farið að verða eins og stór vinahópur á einum stað :) Bara æði ;)
Jæja hér líkur "stuttu" færslunni minn :) Farin að elda ofan í familíuna :)
Venlig hilsen....
Feita Dúfan ;)
Jibbí hjá okkur :)
29. maí 2008 klukkan 22:15
Sorrý hef bara ekki haft tíma til að kvitta síðan netið kom :(
Ég fór í bakinu og það ekki á besta tíma, með 3 börn og á fullu að taka upp úr kössum eftir fluttningana enda lítur út eins og ég hafi verið að flytja í gær ;) Ja kannski ekki alveg en ég var á fullu að sortera upp úr kössum og þar er allt strand :)
Já svo er bara gaman á næstunni, öll familían er að koma og það á sama tíma :)
Tengdó og pabbi, mamma og Jón afi eru öll að koma :) Við segjum bara jibbý við erum í stærra húsi :)
Já okkur finnst þetta bara æði að fá þau öll.
Tengdó verða hér frá 5 -15.
Mamma og afi verða frá 5-13, pabbi verður svo frá 9-13 júní þannig að börnin verða í afa og ömmu sæluríki :) Það er eins gott að Jón afi muni eftir að flytja inn kleinur því að það er smá hefð að hann gefi litlu krílunum í familíunni fyrstu kleinuna og hann Jón litli er sko meira en lítið tilbúin að fá hana :)
Barnið borðar allt sem að kjafti kemur..bókstaflega ;)
Ég sé varla stelpurnar hér á daginn því að verkfallið stendur enn og þær eru bara mjög sáttar við það að fá að vera hér og leika sér með öllum krökkunum í hverfinu allann liðlangann daginn ( Birgitta reyndar eftir hádegi því að hún er í skólanum þá )
Guðbjörg fékk klippingu hjá mér enda sá hún ekki lengur út ;) Hún var svo ánægð að þegar að hún leit í spegilinn þá sagði hún bara...ég er aftur orðin sæt ;) Bara dúlla :)
Birgitta les og les, það mætti halda að hún hefði aldrei gert annað :) Hún er svo dugleg, einnig í stærðfræðinni...svo er hún líka svakalegur heimspekingur :) Bara gaman að henni :)
Nonni er búin að fatta hvernig á að snúa sér og liggur aldrei beint núna :) Alltaf að koma sér í klandur ;)
Hann er farin að reyna að skríða og gengur það vel og svo situr hann líka en hann er svo forvitin og heldur að hann geti allt svo að hann endar alltaf á því að detta til hliðar við það að ná sér í dót :) Bara dúlla :)
Jæja nenni ekki meiru í bili
Kveðja úr sólinni í DK
Feita dúfan ;)
Er enn á lífi :)
16. maí 2008 klukkan 06:56
Já er enn á lífi en er ekki komin með netið í nýja húsið. Húsið er æði og okkur líkar ofsalega vel þarna og sjáum varla stelpurnar frá því að þær koma heim úr skólunum :)
Það er verkfall hjá leikskólakennurum og hjúkkum sem að byrjar á mánudaginn þannig að Guðbjörg verður heima og Birgitta kemur heim strax eftir skóla og fylgja henni ein eða fleiri vinkonur, þar sem að það er svo erfitt fyrir foreldrana að skaffa pössun, og ég er svo heppin að vera í fæðingarorlofi...enda ekki grín að vera kannski bæði í prófum á þessum tíma og svo kemur verkfall !!
Leikskólakennarar höfnuðu hækkun upp á 12,8 % og vilja 13,8 % og ekkert minna :) Ekkert nema gott um það að segja, en leikskólakennarar heima yrðu lagðir inn á hæli ef að þeir færu fram á svona hækkun :) Það er víst bara forsætisráðherra og hans vinir sem að fá svoleiðis hækkanir :(
Jæja hætt núna að tala um pólitík..ég verð alltaf svo reið ;)
Læt flóðið af fréttum koma þegar ég fæ netið ;)
Kveðja úr sól og 20 stiga hita :)
Sigga Vigga
Fluttningar
22. apríl 2008 klukkan 21:27
Það er bara búið að vera brjálað að gera hjá mér og mínum...sorrý ;)
Já svo er ég illilega húkkt á Facebook :) Já það er hægt að finna mig þar 
Við erum að fara að flytja núna um mánaðamótin..fáum lyklana þann 29.apríl og förum þá bara á fullt :)
Þá verður nýja heimilisfangið okkar :
Løvemunden 14 5220 Odense SØ Danmark
Þetta var bara svona fyrir þá sem að vilja og þurfa að vita ;) Okkur hlakkar svo svakalega til að komast í nýtt og stærra húsnæði að við vitum varla hvað við eigum að gera af okkur :)
Jæja læt þetta gott heita í bili enda er ég að kafna úr kvefi og svolítið þreytt eftir langann dag með litla prinsinn í tanntöku á tönn númer 2...já hann ætlar að taka sinn tíma í þetta en núna glittir í tönnina svo það verður varla langt úr þessu..krossum bara fingur :)
Kveðja úr sólinn (sem að hefur komið illilega fyrir það að ég sé dugleg að pakka niður
)
Fimleikasýning og fluttningar
31. mars 2008 klukkan 08:11
